Guðrún Gunnarsdóttir
Sunnudaginn
26. júlí
kl. 21:00
Á tónleikunum á Gömlu Borg flytur Guðrún Gunnars ásamt valinkunnum hljóðfæraleikurum ljóð og lög eftir sænska söngvaskáldið Cornelis Vreeswijk í íslenskum búningi Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar, en geisladiskur með efninu er nýkominn út.
Ásamt Guðrúnu koma fram á tónleikunum þeir Tomas „Limpan“ Lindberg, gítar,
mandóla, búsúkí, Magnus „Storis“ Holmström, nyckelharpa og
kontrabassaharpa, Dan Berglund, kontrabassi, Valgeir Skagfjörð, píanó,
harmónikka, Pétur Grétarsson, slagverk og Aðalsteinn Ásberg, kynningar og
söngur.
Cornelis Vreeswijk (1937-1987) var söngvaskáld, ljóðskáld og leikari,
fæddur í IJmuiden í Hollandi, en fluttist 12 ára gamall ásamt foreldrum
sínum til Svíþjóðar. Hann ætlaði sér að verða blaðamaður, en tónlistin
varð fljótlega helsta viðfangsefni hans. Biturt háð og samfélagsádeila í
verkum hans aflar honum sífellt nýrra aðdáenda. Á ferli sínum sendi hann
frá sér nokkrar ljóðabækur og á fimmta tug LP platna í Svíþjóð og
Hollandi. Auk þess að vera vinsæll tónlistarflytjandi lék hann við góðan
orðstír í leikhúsum og kvikmyndum. Cornelis Vreeswijk er jafnan talinn
meðal helstu söngvaskálda Svía.

