Gestabók - Endilega sendið okkur línu
Hamrar í Ljósi minninganna
Gömlu Borg, 7 ágúst
Hauslausu hænurnar, ljósamótorinn, kamarinn, kúadellurnar, sveitasíminn og saltfiskurinn í bæjarlæknum er á meðal þess sem ber á góma á Upplitsviðburði á Gömlu-Borg í Grímsnesi sunnudaginn 7. ágúst kl. 15. Þá segir Guðfinna Ragnarsdóttir, menntaskólakennari og blaðamaður, frá minningum sínum frá Hömrum í Grímsnesi, hjá Siggu og Jóhannesi, þ.e. Sigríði Bjarnadóttur og Jóhannesi Jónssyni sem bjuggu í austurbænum á Hömrum.
Guðfinna á ótal ómetanlegar minningar frá Hömrum frá sínum bernsku- og unglingsárum. Tengsl fjölskyldu Guðfinnu við Hamra hófust frostaveturinn mikla 1918 þegar föðurbróðir hennar, Elías Kristinn Guðmundsson, var sendur þangað til dvalar níu ára gamall og ólst þar síðan upp. Guðfinna rekur minningar sínar og sýnir síðan fjölmargar ljósmyndir frá Hömrum. Á eftir er öllum viðstöddum boðið í kaffi og meðlæti að hætti Siggu á Hömrum.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Skrímsli
Skrímsli í uppsveitunum og andlit í landslaginu eru viðfangsefni næsta viðburðar Upplits, sem haldinn verður á Gömlu-Borg í Grímsnesi laugardaginn 12. mars kl. 16.00. Þá mun Anna Soffía Óskarsdóttir frá Kaldárhöfða flytja erindi um skrímsli í vötnum í uppsveitum Árnessýslu og Guðmundur Guðmundsson frá Efri-Brú verður með ljósmyndasýningu um andlit í landslaginu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Endilega takið börnin og barnabörnin með - skrímslasögur eru jú fyrir alla aldurshópa!

K R A F T A R
Málverkasýning sem Æja hélt í ágúst á Gömu Borg.


Laugardagur 24. júlí
The
dirty Deal Bluesband verður með Blústónleika á Gömlu Borg á laugardainn
í samstarfi við Menningarráð Suðurlands. Sveitin er skipuð fjórum
Selfyssingum, en þeir eru Guðmar Elís Pálsson, Örn Gunnþórsson, Magnús
Einarsson og Sveinbjörn Oddsson. Tónleikarnir verða næstkomandi
laugardag kl. 22 og kostar kr. 1000 inn á tónleikana
Verið velkomin á Gömlu Borg.
Brú til Borgar
Hin
vinsæla sumarhátíð Brú til Borgar sem er hátíð Hollvina Grímsness
verður helgina 10-11 júlí. Fyrrverandi landbúnaðarráðherra Guðni
Ágústsson mun setja hátíðina hér á Gömlu Borg kl 13 þann 10 júlí.
Einnig verður ljósmyndasýningin Göngur og Réttir opnuð þann sama dag.
Nánari dagskrá hátíðarinnar má sjá hér. Á heimasíðu Hollvinafélags Grímsness er að finna frekari upplýsingar.
South River Band

Prjónakaffi
Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar er hið vinsæla prjónakaffi hér á Gömlu Borg. Endilega látið sjá ykkur!